190Dc 1964 R222

  • 01  Tegund: Mercedes-Benz 190Dc Árgerð: 1964 Eigandi: Sveinn Þorsteinsson  Saga: Bíllinn var upphaflega í eigu leigubílstjóra hjá Hreyfli sem notaði hann til ársins 1971, þegar hjónin Erla og Einar eignast hann. Bíllinn er og hefur frá upphafi verið sjálfskiptur, sem kann að hljóma einkennilega þar sem hann var keyptur fyrir leigubílaakstur. Ástæðan fyrir því að hann var pantaður þannig var sú að bílstjórinn var einfættur. Einar og Erla notaðu hann með hléum fram til um ársins 1995, þegar Einar hófst handa við að gera bílinn upp. Sú aðgerð tók um fjögur ár og skipti hann um bæði frambrettin, eina hurð, húdd og skottlok. Þessir hlutir voru allir keyptir nýir í Ræsi ásamt fleira krómdóti eins og grillinu. Bíllinn var upphaflega 190D en þegar hann var gerður upp þá gerði eigandinn einnig upp 200D vél og lét í bílinn í staðin.  Bíllinn lítur mjög vel út að utan og hefur greinilega verið vandað vel til verka, en að innan er einhver samtíningur af innréttingum (rauð framsæti, svört aftursæti og blá hurðarspjöld, en upphaflega innréttingin var svört). Bíllinn hefur lítið verðir keyrður síðan hann var gerður upp, eða aðeins einhverja hundruð kílómetra að sögn Einars Númer innlögð af eiganda 03.07.02 Sveinn kaupir bílinn í október 2006.
  • 02
  • 03
  • 04
  • 05
  • 06
  • 07
  • 08
  • 09
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • R222gifting
  • R222gifting2
  • Y3404
  • a04
  • ny1
  • ny2